„Við skulum ekki hafa hátt.“ Geisladiskur og útgáfutónleikar.

25. maí 2025 | Tilkynningar

Stöðfirðingurinn Björn Hafþór Guðmundsson sendi frá sér geisladiskinn „Við skulum ekki hafa hátt“ í lok síðasta árs. Laugardaginn 24. maí, buðu hann og eiginkona hans, Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, upp á útgáfutónleika í Stöðvarfjarðarkirkju þar sem lögin af geisladiskinum voru flutt. Á tónleikunum kom fram hljómsveitin The Hafþórs ásamt fjölda tónlistarmanna sem hafa beina eða óbeina tengingu við Austurland. Hljómsveitarstjórn var í höndum Daníels Arasonar tónlistarmanns úr Neskaupstað og Hafþórs Vals Guðjónssonar á Egilsstöðum.

Á diskinum eru 14 lög og voru sex þeirra flutt á tónleikunum. Til viðbótar voru þar lög erlendis frá og eftir aðra sem tengjast Birni Hafþóri. Frumflutt var lag sem Kristján Ingimarsson frá Djúpavogi samdi og tileinkaði Birni Hafþóri þegar hann varð sjötugur og kallast „Elska þig Stöðvarfjörður“.

Á tónleikunum spiluðu m.a. Hafþór Valur Guðjónsson, Hafþór Snjólfur Helgason, Jón Kr. Arnarson, Stefán Bragason, Daníel Arason, Garðar Harðarson, Friðjón Ingi Jóhannsson, Guðmundur Arnþór Hreinsson, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Svanhvít Aradóttir og Svavar Sigurðsson, stofnandi Hammond-hátíðar á Djúpavogi. Þá voru söngvarar á borð við Guðmund Rafnkel Gíslason, Lísu Leifsdóttur, Heiðbjörtu Stefánsdóttur, Drífu Sigurðardóttur, Maríu Bóel Guðmundsdóttur, Hlíf Bryndísi og Ástu Maríu Herbjörnsdætur, Friðjón Inga Jóhannsson og Garðar Harðarson.

Björn Hafþór syngur eitt lag á plötunni en það var ekki flutt á tónleikunum. Hann spilaði á bassa og gítar og kveðst sérstaklega hafa hlakkað til að spila loks með hljómsveitinni „The Hafþórs“ sem þeir Hafþór Snjólfur Helgason og Hafþór Valur Guðjónsson mynda hryggjarstykkið í. „Ég kom að því að stofna sveitina og tel mig eiga hugmyndina að nafninu en hef aldrei fengið að spila með þeim fyrr en nú. Á tónleikunum rættist sá draumur.“

„Björn Hafþór var kennari á Stöðvarfirði í 14 ár, sinnti íþróttamálum og starfaði við sveitarstjórnarmál fyrir austan í 38 ár, þar til hann hætti störfum 2020. Hann var til dæmis sveitarstjóri bæði á Stöðvarfirði og Djúpavogi, bæjarstjóri Austur-Héraðs og formaður og síðar framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. „Ég hef átt útgefin lög og texta áður, til dæmis tvö lög og texta á plötunni Austfirskum staksteinum 3 með Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar á Akureyri, sem á reyndar rætur að rekja austur. Með útgáfum sínum hefur Friðjón varðveitt austfirska tónlist, sem annars hefði sennilega aldrei verið gefin út, og því á ákveðinn hátt gert sitt til þess að bjarga ákveðnum menningarverðmætum.“

Árið 1962 vantaði bassaleikara í hljómsveitina Esskó á Eskifirði. „Keyptur var handa mér bassi og ég munstraður sem bassaleikari. Byrjaði að spila á böllum 15 ára gamall,“ segir Björn Hafþór um upphaf tónlistarferilsins. Mest hafi verið að gera í landlegum á síldarárunum sem og um áramót. „Ég var orðinn þreyttur á nafninu Esskó og heimtaði að við nefndum bandið Ágúst berhenti. Þetta voru ekki þekktar hljómsveitir, nema þá í heimabyggð og næsta nágrenni.“

Björn Hafþór hafði föndrað við textagerð en var blautur bak við annað eyrað þegar kom að hljóðfæraleik og söng. „Þegar á leið var ég alveg frambærilegur í hópnum,“ segir hann og leggur áherslu á að hann hafi aldrei farið í tónlistarskóla heldur spilað eftir eyranu. Lagið „Tíminn tifar“ sé það eina á diskinum þar sem hann spili á gítar og syngi, en annars hafi hann fengið sérfræðinga í verkið. „Ég er stoltastur af því og það er til eftirbreytni að ég leitaði nánast eingöngu til austfirskra tónlistarmanna. Þeirra þekktastir eru söngvararnir Guðmundur Rafnkell Gíslason, Friðjón Ingi Jóhannsson og Einar Ágúst Víðisson og hljómborðsleikarinn Svavar Sigurðsson, stofnandi Hammondhátíðar Djúpavogs.“

Um 30 manns komu að vinnu við diskinn á einn eða annan hátt og var gengið frá útgáfu vínilplötu með 10 lögum af honum fyrir ekki svo löngu síðan. Daníel Arason sá um útsetningar og upptökur að mestu en Gunnar Smári Helgason annaðist hljóðblöndun. „Lögin spanna alla flóruna, þarna eru meðal annars blús, vals, vangalög, reggae-tónlist og ekta austfirskt rokk,“ segir Björn Hafþór, sem heillast mest af tónlist eftir Beethoven, Bítlana, Moody Blues, Crosby, Stills, Nash & Young og Gunnar Þórðarson.“ (Morgunblaðið 23. maí 2025.)

Að tónleikunum loknum var kaffisamsæti og rann allur ágóði beint til styrktar fornleifauppgreftrinum að bænum Stöð í botni Stöðvarfjarðar. Staðsetningin er athyglisverð; þar má finna skjólgóða höfn í þeim firði Íslands sem liggur einna næst Noregi og Bretlandseyjum. Fornleifauppgröfturinn hófst sumarið 2016 undir stjórn Bjarna F. Einarssonar og benda C-14 aldursgreiningar til að á Stöð hafi norrænir menn reist skála mjög skömmu eftir árið 800. Grafnir hafa verið upp tveir skálar og margir markverðir munir hafa fundist. Rökræður hafa farið fram innan vísinda- og fræðasamfélagsins, svo og meðal áhugamanna um landnámið hvort tilefni sé til að endurskrifa Íslandssöguna í ljósi þess að það hafa komið fram sterkar vísbendingar um búsetu 100 til 200 árum fyrir hið viðurkennda landnámsártal 847, þegar Ingólfur Arnarson er sagður hafa byggt bæ sinn í Reykjavík. Ísland þarf nýtt landnámsártal.

Lagið Veröld sem var á YouTube með gullfallegu myndbandi sem Valgeir Þór Jakobsson gerði.

Við skulum ekki hafa hátt í heild sinni á Spotify.

Geisladiskinn og vinil hljómplötuna er hægt að kaupa í vefversluninni okkar.
Ýttu hér til að kaupa geisladiskinn.
Ýttu hér til að kaupa vinilinn.

Björn Hafþór Guðmundsson

Fleiri tilkynningar

Auka ljósleiðari tengdur.

Þann 21. maí var ljósleiðari frá Mílu tengdur við gagnavistunarkerfi Lagarins - tölvuþjónustu. Er hann viðbót og tekur sjálfkrafa við ef sá...

read more

Nokkur heilræði varðandi gagnaöryggi.

Öryggi er ekki eitthvað sem er sett upp í eitt skipti — það er viðvarandi hugsunarháttur sem við verðum að tileinka okkur. Verum meðvituð – fylgjumst með og lærum – verum vakandi!

read more

Sumarkveðja.

Lögurinn - tölvuþjónusta óskar viðskiptavinum sínum sem og Austfirðingum öllum gleðilegs sumars.

read more