Kvenréttindaginn 19. júní.

19. júní 2025 | Tilkynningar

Lögurinn – tölvuþjónusta óskar konum til hamingju með hátíðis- og baráttudaginn 19. júní.

Kvenréttindadagurinn 19. júní er hátíðis- og barátturdagur kvenna á Íslandi þar sem því er fagnað að 19. júní 1915 fengu konur á Íslandi sem og vinnumenn  40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis þegar þáverandi Danakonungur Kristján X samþykkti nýja stjórnarskrá fyrir Ísland.

Aðdragandi

Baráttan fyrir kosningarétti kvenna á Íslandi hafði þá staðið frá árinu 1885 þótt fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895.

Alþingi hafði þó þegar árið 1911 samþykkt lög um kosningarétt kvenna en þau lög hlutu ekki náð fyrir augum Danakonungs og öðluðust því ekki gildi. Það gerðist ekki fyrr en 1915 og þá með framangreindum aldurskilyrðum en engin önnur þjóð hafði setti sambærileg aldursskilyrði fyrir kosningarétti kvenna.

Með sambandslagasamningi Dana og Íslendinga árið 1918 sem kvað á um jafnan rétt Íslenskra og Danskra ríkisborgara var þetta 40 ára aldursákvæði numið úr lögum og konur fengu þar með jafnan kosningarétt á við karla. En Danskar konur höfðu fengið fullann kosningarétt til jafns á við karla án aldursskilyrða sama ár og þær Íslensku þann 5. júní 1915.

Femínistar á Íslandi hafa frá árinu 2003 hvatt til þess að dagsins yrði minnst með því að bera eitthvað bleikt og notað kjörorðið „Málum bæinn bleikan“.

(heimild: islensktalmanak.is)

Áfram stelpur er plata sem kom út á kvennaárinu 1975. Hlustum á lagið Áfram stelpur (í augsýn er nú frelsi).

Fleiri tilkynningar

Gleðilegan þjóðhátíðardag.

Lögurinn - tölvuþjónusta sendir viðskiptavinum sínum sem og Austfirðingum öllum bestu kveðjur á þjóðhátíðardaginn. Við hvetjum ykkur til að flagga...

read more

Nokkur heilræði varðandi gagnaöryggi.

Öryggi er ekki eitthvað sem er sett upp í eitt skipti — það er viðvarandi hugsunarháttur sem við verðum að tileinka okkur. Verum meðvituð – fylgjumst með og lærum – verum vakandi!

read more