Lögurinn – tölvuþjónusta óskar konum til hamingju með hátíðis- og baráttudaginn 19. júní.
Kvenréttindadagurinn 19. júní er hátíðis- og barátturdagur kvenna á Íslandi þar sem því er fagnað að 19. júní 1915 fengu konur á Íslandi sem og vinnumenn 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis þegar þáverandi Danakonungur Kristján X samþykkti nýja stjórnarskrá fyrir Ísland.
Aðdragandi
Baráttan fyrir kosningarétti kvenna á Íslandi hafði þá staðið frá árinu 1885 þótt fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895.
Alþingi hafði þó þegar árið 1911 samþykkt lög um kosningarétt kvenna en þau lög hlutu ekki náð fyrir augum Danakonungs og öðluðust því ekki gildi. Það gerðist ekki fyrr en 1915 og þá með framangreindum aldurskilyrðum en engin önnur þjóð hafði setti sambærileg aldursskilyrði fyrir kosningarétti kvenna.
Með sambandslagasamningi Dana og Íslendinga árið 1918 sem kvað á um jafnan rétt Íslenskra og Danskra ríkisborgara var þetta 40 ára aldursákvæði numið úr lögum og konur fengu þar með jafnan kosningarétt á við karla. En Danskar konur höfðu fengið fullann kosningarétt til jafns á við karla án aldursskilyrða sama ár og þær Íslensku þann 5. júní 1915.
Femínistar á Íslandi hafa frá árinu 2003 hvatt til þess að dagsins yrði minnst með því að bera eitthvað bleikt og notað kjörorðið „Málum bæinn bleikan“.
(heimild: islensktalmanak.is)