Lögurinn – tölvuþjónusta hefur hafið samstarf við Tölvuhvíslarann í Neskaupstað.
Tölvuhvíslarinn er nýtt fyrirtæki sem sér um almenna tækni- og tölvuaðstoð; uppsetningu á tölvum, viðhald og viðgerðir. Einnig sér Tölvuhvíslarinn um yfirfærslu gamalla VHS myndbanda yfir á starfænt form og mun Lögurinn – tölvuþjónusta sjá um gagnahýsingu fyrir verkefnið.
